15.08.21 - 11:48
Brynjar Ingi Erluson
Sevilla kaupir Augustinsson frá Bremen (Staðfest)

Ludwig Augustinsson

Mynd: EPA

Ludwig Augustinsson

Mynd: EPA
Spænska félagið Sevilla gekk í dag frá kaupum á sænska vinstri bakverðinum Ludwig Augustinsson. Samningurinn er til næstu fjögurra ára.
Augustinsson er 27 ára gamall og hefur spilað með Bremen frá 2017 en þar áður lék hann með FCK, Gautaborg og Brommapojkarna.
Sænski landsliðsmaðurinn hefur gert vel í Þýskalandi síðustu ár auk þess sem hann er mikilvægur í liði Svía.
Sevilla greiðir 11 milljónir evra fyrir Augustinsson og gerir hann fjögurra ára samning. Hann er þá fyrsti sænski leikmaðurinn til að spila fyrir Sevilla í sögu félagsins.
Hann mun berjast við argentínska leikmanninn Marcos Auna um vinstri bakvarðarstöðuna, þó það sé einnig möguleiki á að Acuna verði færður inn á miðsvæðið.