Fotbolti.net
15.09.14 - 21:09
Gunnar Birgisson

Óli Þórðar og Milos þjálfa Víking saman (Staðfest)

Milos og Óli í stuði.

Milos og Óli í stuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur hefur tilkynnt að Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic munu þjálfa liðið saman næstu tvö árin.

Ólafur tók við liðinu haustið 2011 og Milos hefur verið aðstoðarmaður hans, en núna verða þeir titlaðir saman aðalþjálfarar liðsins.
Fréttatilkynning frá Víkingi
Það er stjórn knattspyrnudeildar Víkings sönn ánægja að tilkynna að samkomulag hefur náðst við Ólaf Þórðarson og Milos Milojevic um að taka að sér þjálfun meistaraflokksliðs félagsins næstu tvö árin. Sú breyting verður á samstarfi þeirra að Milos sem áður var aðstoðarþjálfari liðsins mun nú verða aðalþjálfara með Ólafi.

Ólafur og Milos hafa nú starfað saman í tvö ár hjá félaginu og undir þeirra stjórn hefur liðið tekið miklum framförum. Félagið vann sér sem kunnugt er úrvalsdeildarsæti haustið 2014 og situr þessa stundina í 4. sæti Pepsí-deildar karla.

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.