Aron Jóhannsson, leikmaður Hammarby í Svíþjóð, fór meiddur af velli á 11. mínútu gegn Gautaborg.
Hammarby er að vinna Gautaborg 3-1 í hálfleik en heimamenn neyddust til að gera tvær skiptingar á fyrstu átján mínútunum.
Aron, sem kom til Hammarby frá Werder Bremen á frjálsri sölu, hefur verið að spila reglulega með sænska liðinu í síðustu leikjum en hann hefur glímt við erfið meiðsli í ökkla.
Hann haltraði af velli á 11. mínútu leiksins og sjö mínútum síðar meiddist Imad Khalili og þurfti hann einnig að fara af velli.
Hammarby getur með sigrinum farið upp í 4. sæti í 44 stig.
Athugasemdir