Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 15. september 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eigandinn mjög glaður með Ribery: Var betri en Ronaldo
Rocco Commisso, eigandi Fiorentina, var mjög hrifinn af frammistöðu Franck Ribery í markalausa jafnteflinu gegn Ítalíumeisturum Juventus í gær.

Fiorentina átti betri færi í leiknum og var liðið óheppið að vinna ekki leikinn.

Hinn 36 ára gamli Ribery gekk í raðir Fiorentina í sumar eftir 12 ára dvöl hjá Bayern München. Eigandi Fiorentina sagði eftir leikinn að Ribery hefði verið betri en Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, í leiknum.

„Sáuð þið hinn 36 ára gamla Ribery? Hann spilaði betur en Cristiano Ronaldo!" sagði Rocco Commisso eftir leikinn.

„Ítalarnir okkar, Gaetano Castrovilli og Federico Chiesa, voru líka stórkostlegir."
Athugasemdir
banner