Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 15. september 2019 15:24
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr leik Bournemouth og Everton: Gylfi fær fimmu
Gylfi Þór SIgurðsson og félagar fagna marki Everton
Gylfi Þór SIgurðsson og félagar fagna marki Everton
Mynd: Getty Images
Bournemouth vann góðan 3-1 sigur á Everton í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en Everton átti arfaslakan dag fyrir framan markið.

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins, fær fimm fyrir sitt framlag.

„Gylfi átti í vandræðum með að finna pláss til að athafna sig til að opna vörn heimamanna og ekki það að hann hafi ekki reynt, en samt sem áður þegar hann var að að sækja þá voru áhrif hans takmörkuð," var skrifað um Gylfa í Liverpool Echo.

Gylfi fór af velli á 71. mínútu fyrir ítalska sóknarmanninn Moise Kean.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnir leikmanna Everton.

Einkunnir Everton:

Jordan Pickford 6
Seamus Coleman 6
Lucas Digne 5
Michael Keane 5
Yerry Mina 5
Fabian Delph 6
Morgan Schneiderlin 5
Gylfi Þór Sigurðsson 5
Richarlison 6
Alex Iwobi 5
Dominic Calvert-Lewin 7
Varamenn:
Moise Kean 6
Bernard 5
Athugasemdir
banner
banner
banner