Varnarmaðurinn María Þórisdóttir hefur farið stórkostlega af stað á nýju tímabili með stórliðinu Manchester United.
María yfirgaf Chelsea á miðju síðasta tímabili og gekk þá í raðir Man Utd, sem er eitt stærsta fótboltafélag í heiminum - rétt eins og Chelsea.
María hefur byrjað fyrstu tvo leiki Man Utd á tímabilinu og skoraði hún í síðasta leik gegn Leicester, í 1-3 sigri. Hún átti stórkostlegan leik eins og sjá má á tölfræðinni hér að neðan.
María komst í lið vikunnar hjá Her Football Hub sem er vefsíða sem fjallar um kvennaboltann. Hún er ásamt Vivianne Miedema, markamaskínunni sem mun koma hingað til lands í vikunni fyrir leik Hollands og Íslands í undankeppni HM í næstu viku. Miedema spilar með Arsenal og hollenska landsliðinu.
María er hálfíslensk; faðir hennar er handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson. María spilar með norska landsliðinu.
Maria Thorisdottir vs Leicester City today:
— The United Star (@TheUnitedStar2) September 12, 2021
6️⃣ Recoveries
2️⃣ Interceptions
5️⃣ Clearances
2️⃣ Headed clearances
5️⃣ Duels won
4️⃣ Aerial duels won
4️⃣7️⃣ Touches
1️⃣ Shot
1️⃣ GOALLLLLL ⚽
Exceptional performance @MariaThorisdott ⚡#MUWomen #MUWFC #ManUtd pic.twitter.com/31XpkAKRKV
🌟 𝗧𝗘𝗔𝗠 𝗢𝗙 𝗧𝗛𝗘 𝗪𝗘𝗘𝗞 🌟
— Her Football Hub (@HerFootballHub) September 12, 2021
We said it would be an interesting one… so here it is! 👀
If we could release two, we would. There were so many superstars this week — but here’s the HFH #TOTW for Gameweek 2! 🤩#FAWSL pic.twitter.com/KElfnueFLo
Athugasemdir