Fotbolti.net
15.10.14 - 14:52
Elvar Geir Magnússon

Gregg Ryder áfram með Þrótt (Staðfest)

Englendingurinn Gregg Ryder tók við þjálfun Þróttar fyrir síðasta tímabil.

Englendingurinn Gregg Ryder tók við þjálfun Þróttar fyrir síðasta tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gregg Ryder þjálfari Þróttar hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár til viðbótar og er því samningsbundinn félaginu til næstu tveggja ára. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Þróttarar stóðu sig framar vonum á liðnu tímabili í 1. deildinni og enduðu í þriðja sæti.

Heimasíðan segir að það sé trú þjálfara og leikmanna að verið sé að byggja upp sterkt lið til framtíðar sem hefur burði til þess að gera enn betur á komandi árum. Félagið mun að öllum líkindum halda sama leikmannahópi, ásamt því að styrkja hópinn með gæða leikmönnum segir á heimasíðunni.

„Ég er í skýjunum með að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið og það er strax komin tilhlökkun fyrir næsta tímabil. Félagið hefur tekið framförum frá síðasta októbermánuði þegar við höfðum bara sex samningsbundna leikmenn,\" segir Gregg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.