Fotbolti.net
15.10.15 - 21:04
Ívan Guðjón Baldursson

Davíð Snorri í þjálfarateymi Stjörnunnar (Staðfest)

Davíð Snorri í þjálfarateymi Stjörnunnar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Snorri Jónasson, sem stýrði Leikni ásamt Frey Alexanderssyni í Pepsi-deildinni í sumar, er genginn til liðs við þjálfarateymi Stjörnunnar.

Davíð Snorri og Freyr sögðu af sér eftir að Leiknir féll niður í 1. deild og er Davíð búinn að finna sér starf hjá Stjörnunni.
Davíð Snorri sér um þjálfun 3. flokks Stjörnunnar auk sérverkefna í meistaraflokk karla.

Opinn fundur er í gangi hjá Stjörnunni sem endaði í fjórða sæti Pepsi-deildar karla í ár, og öðru sæti Pepsi-deildar kvenna. Félagið tilkynnti einnig samning við varnarmanninn Grétar Sigfinn Sigurðarson fyrr í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.