Plamen Iliev, markvörður Búlgaríu, segir að stuðningsmenn félagsins hafi hagað sér vel í leiknum gegn Englandi í undankeppni EM í gærkvöldi.
Tvívegis þurfti að stöðva leikinn í gærkvöldi vegna kynþáttafordóma hjá stuðningsmönnum Búlgaríu.
Krasimir Balakov, landsliðsþjálfari Búlgara, sagðist ekki hafa heyrt fordómana og nú hefur Iliev sagt slíkt hið sama. Ótrúleg ummæli.

„Í hreinskilni sagt fannst mér stuðningsmennirnir hegða sér vel í dag," sagði Iliev eftir leikinn í gær.
„Ég gat ekki heyrt fordóma og mér fannst leikmenn enska liðsins bregðast aðeins of harkalega við. Ég heyrði ekkert slæmt sagt um þeirra eða okkar leikmenn."
Athugasemdir