Fotbolti.net
15.10.20 - 18:38
Victor Pálsson

Colin Kazim-Richards til Derby (Staðfest)

Kazim-Richards árið 2016.

Kazim-Richards árið 2016.

Canon

Mynd: Getty Images

Derby County í næst efstu deild Englands hefur fengið til sín reynsluboltann Colin Kazim-Richards á frjálsri sölu.
Kazim-Richards er fæddur á Englandi en hann hóf ferilinn hjá QPR og Arsenal og samdi síðar við Brighton og Sheffield United.

Sóknarmaðurinn hefur spilað fyrir gríðarlega mörg félög á ferlinum og má nefna Fenerbahce, Galatasaray, Feyenoord, Olympiakos og Celtic.

Síðast var Kazim-Richards á mála hjá Pachuca í Mexíkó en spilaði aðeins átta leiki fyrir félagið og skoraði tvö mörk.

Hann á að baki 37 landsleiki fyrir Tyrkland og mun reyna að hjálpa Derby í erfiðri Championship-deild.

Derby hefur byrjað erfiðlega í deildinni og er með þrjú stig eftir fjóra leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.