15.10.20 - 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Victor Moses til Spartak Moskvu (Staðfest)

Moses í baráttunni við Birki Bjarnason á HM2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Moses í baráttunni við Birki Bjarnason á HM2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Chelsea hefur staðfest að Victor Moses hafi yfirgefið herbúðir félagsins og verður hann að láni hjá Spartak Moskvu í Rússlandi út þetta tímabil.
Í lánssamningnum verður klásúla um að Spartak megi kaupa Moses á átta milljónir punda næsta sumar.
Í lánssamningnum verður klásúla um að Spartak megi kaupa Moses á átta milljónir punda næsta sumar.
Þetta er í sjötta skipti sem hann yfirgefur Chelsea á láni. Hann var að láni hjá Fenerbahce og Inter í fyrra og hafði áður verið hjá Liverpool, Stoke og West Ham.
Moses er 29 ára gamall og var í stóru hlutverki þegar Chelsea varð Englandsmeistari undir stjórn Antonio Conte. Moses lék þá sem hægri vængmakvörður.
Moses er 29 ára gamall og var í stóru hlutverki þegar Chelsea varð Englandsmeistari undir stjórn Antonio Conte. Moses lék þá sem hægri vængmakvörður.
