Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. október 2021 09:19
Elvar Geir Magnússon
Ágúst Gylfason nýr þjálfari Stjörnunnar (Staðfest)
Ágúst Gylfason, nýr þjálfari Stjörnunnar.
Ágúst Gylfason, nýr þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason er nýr þjálfari Stjörnunnar í efstu deild karla. Hann tekur við starfinu af Þorvaldi Örlygssyni sem er kominn í nýtt starf innan félagsins.

Ágúst stýrði síðast Gróttu en um leið og Stjarnan fór í þjálfaraleit ræddi félagið við hann. Ágúst og Stjarnan hafa hist nokkrum sinnum síðustu viku og nú hefur verið gengið frá samningi.

Eins og greint hefur verið frá þá ræddi Stjarnan einnig við Heimi Hallgrímsson en náði ekki samkomulagi við hann.

Í yfirlýsingu Stjörnunnar segir Ágúst að stefna Stjörnunnar sé að styrkja leikmannahóp sinn með því að sækja öfluga menn fyrir næsta tímabil.

Tilkynning Stjörnunnar:
Ágúst Gylfason hefur samið við Stjörnuna í Garðabæ um að taka við þjálfun liðsins til næstu tveggja ára. Ágúst er reynslumikill þjálfari sem hefur komið víða við og náð góðum árangri með sín lið og verður gaman að sjá hann taka við liðinu og stýra því á komandi árum.

„Við höfum verið í sambandi og hist nokkrum sinnum á undanförnum vikum og farið heildstætt yfir málin og rætt okkur í þá átt að við teljum okkur geta gert frábæra hluti í sameiningu og teljum Gústa rétta manninn fyrir okkar lið á þessum tímapunkti. Gústi er öflugur þjálfari sem við höfum fulla trú á að henti vel fyrir þá leið sem við erum að fara og það er gríðarlegt ánægjuefni fyrir okkur sem félag með mikinn metnað að finna aðila sem deilir sýn okkar og skilur stefnu okkar til komandi ára og við erum sannfærð um það að næstu skref okkar verða árangursrík. Ég hlakka mikið til samstarfsins og bíð spenntur eftir upphafs flauti komandi tímabils" segir Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar.

„Það er ákaflega spennandi fyrir mig sem þjálfara að fá tækifæri hjá jafn öflugu og spennandi félagi eins og Stjarnan er en eftir að hafa hitt forsvarsmenn félagsins og farið í gegnum frekar langt ferli þar sem menn gáfu sér tíma til að fara vel yfir málin þá hef ég fengið að kynnast þeim ágætlega og í leiðinni sannfærðist ég fullkomlega um að við getum gert frábæra hluti í sameiningu enda liðið og öll umgjörð í kringum félagið frábært: Leikmannahópur liðsins er stór og öflugur og spennandi blanda af ungum og reyndari mönnum sem ég veit að vilja ná árangri ásamt því að við munum sækja nýja og öfluga leikmenn til að styrkja liðið," segir Ágúst Gylfason.

„Ég er líka ákaflega spenntur að kynnast Silfurskeiðinni, sem eins og allir vita eru öflugustu stuðningsmenn landsins og vona að þeir muni styðja vel við bakið á okkur eins og verið hefur. Nú stígum við næstu skref og sjáum hvert það leiðir okkur og vonandi munu Garðbæingar fylkja sér bakvið liðið."


Athugasemdir
banner
banner
banner