Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. október 2021 15:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lukaku spilar á morgun - Rudiger og Silva ekki með
Silva fagnar með landsliðinu.
Silva fagnar með landsliðinu.
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, greindi frá því á blaðamannafundi í dag að nokkrir leikmenn í hans liði muni ekki spila á móti Brentford á morgun.

„Thiago Silva lendir seinni partinn og vonandi í toppstandi frá Brasilíu. Við höfum tekið taktískar æfingar og fundi og hann missti af þeim. Þar er svarið ykkar hvort hann spili á morgun. Antonio Rudiger er meiddur, kom meiddur úr landsliðsverkefni. Christian Pulisic er ennþá meiddur," sagði Tuchel.

Þýski stjórinn segir þá að Hakim Ziyech sé tæpur en hann hefur misst af síðustu tveimur æfingum vegna höfuðverks.

„Ég get sagt ykkur að Romelu er í góðu lagi og hann verður með á morgun," sagði Tuchel á fundinum í dag.

„Auðvitað er ég ekki sáttur en ég vissi af stöðunni áður en Thiago fór í verkefnið. Svona er þetta og við stjórar erum ekki ánægðir með þann fjölda leikja sem leikmenn spila fyrir þjóð sína. Erum við spurðir álits? Nei, það er ekki gert. Breytir það einhverju ef ég er pirraður? Nei. Ég hef lært að fara ekki í vont skap út af þessu."
Athugasemdir
banner
banner