Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. október 2021 16:30
Hafliði Breiðfjörð
Miðasala á leiki Íslands hefst á mánudaginn - frítt fyrir 16 ára og yngri
Icelandair
Úr leik Íslands og Hollands í síðasta mánuði.
Úr leik Íslands og Hollands í síðasta mánuði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðasala á leiki kvennalandsliðsins gegn Tékklandi og Kýpur hefst næstkomandi mánudag en í tilkynningu KSÍ í dag kom fram að frítt verði fyrir 16 ára og yngi á leikina tvo.

Ísland mætir Tékklandi föstudaginn 22. október og Kýpur þriðjudaginn 26. október. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli og hefjast þeir kl. 18:45. Leikirnir eru liður í undankeppni HM 2023.

- Miðasala á Ísland - Tékkland
- Miðasala á Ísland - Kýpur

Miðasala á leik Íslands og Tékklands hefst kl. 12:00 og miðasala á leik Íslands og Kýpur kl. 13:00.

Frítt verður á leikina fyrir 16 ára og yngri. Vegna COVID takmarkana þurfa allir vallargestir að hafa miða.

Þrjú verðsvæði eru á leikjunum.
Svæði 1 - 4000 krónur.
Svæði 2 - 3000 krónur.
Svæði 3 - 2000 krónur.
Frítt fyrir 16 ára og yngri

- Miðasala á Ísland - Tékkland
- Miðasala á Ísland - Kýpur
Athugasemdir
banner
banner
banner