Fotbolti.net
15.11.13 - 11:39
Magnús Már Einarsson

Hjörtur Logi til Sogndal (Staðfest)

Hjörtur Logi til Sogndal (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Vinstri bakvörðurinn Hjörtur Logi Valgarðsson hefur yfirgefið herbúðir IFK Gautaborg og gengið í raðir Sogndal í Noregi.

Hjörtur Logi hefur skrifað undir þriggja ára samning við Sogndal sem endaði í tólfta sæti í norsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Jonas Olsson, þjálfari Sogndal, fékk Hjört Loga til Gautaborg frá FH árið 2011 og þekkir því vel til hans.

Á nýliðnu tímabili var Hjörtur Logi úti í kuldanum hjá Gautaborg en hann kom einungis við sögu í sex leikjum í sænsku úrvalsdeildinni.

Á heimasíðu Sogndal kemur fram að fleiri félög voru á eftir Hirti Loga en hann ákvað að fara til Noregs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.