Fotbolti.net
15.11.15 - 16:05
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Montella tekinn við Sampdoria (Staðfest)

Vincenzo Montella kominn með starf

Vincenzo Montella kominn með starf

Canon

Mynd: Getty Images

Vincenzo Montella er tekinn við ítalska úrvalsdeildarliðinu Sampdoria. Þetta var staðfest á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu.
Montella var mikill markaskorari á leikmannaferli sínum og spilaði á sínum tíma með Sampdoria þar sem hann skoraði 54 mörk í 83 leikjum áður en hann hélt til AS Roma þar sem hann hélt áfram að raða inn mörkum.

Hann tekur nú við Sampdoria af Walter Zenga sem var látinn taka pokann sinn á dögunum en liðið er í 10.sæti Serie A.

Montella gerir samning til 30.júní 2018 en hann hefur áður stýrt Catania og Fiorentina í ítalska boltanum, auk þess sem hann var ráðinn til bráðabirgða hjá AS Roma á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.