Fotbolti.net
15.11.15 - 20:32
Alexander Freyr Tamimi

Paul Lambert nýr stjóri Blackburn (Staðfest)

Lambert er nýr stjóri Blackburn.

Lambert er nýr stjóri Blackburn.

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Lambert hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Blackburn, en félagið spilar í Championship deildinni á Englandi.

Gary Bowyer var látinn taka pokann sinn á dögunum eftir einungis þrjá sigra í fyrstu 16 umferðum deildarinnar, en liðið er í 16. sætinu. Lambert mun taka við stjórnartaumunum, en hann hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Aston Villa.
Lambert var áður stjóri Norwich og kom liðinu upp um tvær deildir úr League One í úrvalsdeildina og hélt hann liðinu uppi í deild þeirra bestu tímabilið 2011/12. Hann yfirgaf síðan félagið og tók við Aston Villa.

Fyrsti leikur Lambert við stjórnvölinn á Ewood Park verður gegn Preston North End á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.