Fotbolti.net
15.11.15 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Pétur Steinn í Gróttu (Staðfest)

 Frá vinstri: Hilmar S. Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, Pétur Steinn Þorsteinsson og Úlfur Blandon, þjálfari liðsins.

Frá vinstri: Hilmar S. Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, Pétur Steinn Þorsteinsson og Úlfur Blandon, þjálfari liðsins.

Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Pétur Steinn Þorsteinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu. Leikmaðurinn ungi er uppalinn hjá félaginu og kemur nú heim eftir ársdvöl hjá AIK í Svíþjóð.
Pétur Steinn er fæddur 1997 en tímabilið 2013 fékk hann sitt fyrsta tækifæri með meistaraflokki Gróttu. Það sumar og næsta spilaði hann samtals 11 leiki í 2. deildinni og Borgunarbikarinum og skoraði í þeim eitt mark.

Auk þess hefur Pétur Steinn spilað 11 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Aðspurður segist Pétur Steinn, sem var valinn efnilegasti leikmaður Gróttu á lokahófi knattspyrnudeildar árið 2013, ánægður með að vera kominn aftur á heimaslóðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.