Fotbolti.net
15.11.15 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Vaz Te verður liðsfélagi Jóa Bergs (Staðfest)

Riccardo Vaz Te er búinn að semja við Charlton

Riccardo Vaz Te er búinn að semja við Charlton

Canon

Mynd: Getty Images

Riccardo Vaz Te, fyrrum sóknarmaður Bolton og West Ham, er búinn að skrifa undir samning við Charlton, en samningurinn gildir út tímabilið.

Vaz Te hafði verið án liðs síðan hann yfirgaf tyrkneska félagið, Akhisar Belediyespor, í sumar.
Þar áður lék hann með West Ham, en þar skoraði hann 19 mörk í 61 leik áður en hann yfirgaf félagið í janúar.

Nú er hann búinn að semja við Charlton sem situr í 22. sæti Championship-deildarinnar á Englandi, en með Charlton leikur landsliðsmaðurinn, Jóhann Berg Guðmundsson.

Vaz Te gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Charlton gegn Birmingham, laugardaginn 21. nóvember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.