Fotbolti.net
15.11.21 - 14:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jón Rúnar um Heimi: Hefði kannski gert þetta öðruvísi

Jón Rúnar Halldórsson

Jón Rúnar Halldórsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Það muna margir eftir því þegar Heimir Guðjónsson var rekinn frá FH haustið 2017 eftir að hafa verið mjög sigursæll sem þjálfari liðsins í um áratug. Heimir var látinn fara þann 6. október og var sett spurningarmerki við tímasetninguna þar sem Heimir hafði ekki marga kosti til að semja við annað félag um starf, allavega ekki á Íslandi.
Þróunin varð þannig að Ólafur Kristjánsson tók við sem þjálfari FH og Heimir Guðjónsson tók við sem þjálfari HB í Færeyjum.

Jón Rúnar Halldórsson var formaður FH á þessum tíma og tók þá ákvörðun að skipta Heimi út. Hann ræddi um þessa ákvörðun í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson í þættinum Foringjarnir sem sýndur var á Stöð 2 Sport í gær.

Lestu meira um málið:
Heimir Guðjónsson rekinn frá FH (Staðfest)
Heimir Guðjóns: Þetta er ákvörðun FH
Heimir Guðjóns: Eina sem ég er ósáttur við er tímasetningin
FH-ingar heyrðu í Ólafi áður en Heimi var sagt upp

Aðskilnaður heila og hjarta
„Í fyrsta lagi var þetta gríðarlega erfið ákvörðun. Alveg sama hvernig allt hefði verið þá er það bara erfitt að skilja við einhvern sem þú ert búinn að vera svona lengi með, vinna svona náið með og mann sem er búinn að gefa mér, sem formanni, allt það sem hann gaf þessu félagi," sagði Jón Rúnar.

„Þetta var spurning um aðskilnað heila og hjarta og þú þarft að fara í það. Ég get alveg verið tilbúinn svona á efri árum að maður hefði kannski átt að nota sér lengri tíma, ég veit ekkert um það. Mér fannst vera kominn einhvers konar stöðnun í þetta. Mér fannst báðir aðilar þurfa einhverjar aðrar áskoranir. Það hefur mikið verið fjallað um að ég hafi rekið hann, rekið hann á ósanngjarnan hátt."

Ýmsir hagsmunir í gangi
„Þessu hefur maður setið undir allan tímann. Það er nú þannig þegar þú ræður einhvern í vinnu að það eru samningar, hvort sem það er leikmaður eða þjálfari. Það stendur eitt og annað í þessum samningum og í þessum samningi stóð dagsetning sem ég mátti gera eitthvað. Það kom gluggi," sagði Jón Rúnar og Henry Birgir kláraði setninguna og nefndi uppsagnarákvæði sem þekkt sé í fótboltaheiminum.

„Akkúrat og það er bara í ákveðnum glugga. Ég varð að gera það í þessum glugga, gerði það að vísu á fyrstu klukkustundum þess glugga. Ég er að fara fyrir félaginu og það eru ýmsir hagsmunir í gangi. Þó að ég hafi í mínum viltustu draumum ekki haldið að Heimir myndi fara í það [Breiðablik og KR voru nýbúin að ráða þjálfara], hann er svo mikill drengur góður og upptekinn af einu: fótbolti, að þjálfa og ná árangri. Heimir er ekki upptekinn af neinu öðru."

„Hefði ég gert þetta fyrr, ekki í samræmi við samninginn, þá hugsanlega hefði eitthvað getað gerst. Menn töldu þarna að öll sund hefðu verið lokuð, eftir 6. október. Það var líka öfugt, hann gat hætt og þá hefði ég ekki verið með neinn þjálfara. Þetta er oft kaup kaups, hallar á báða eða er báðum til framdráttar, hvernig sem menn líta á það."

Hefði gert þetta öðruvísi
„Þetta gerðist og maður telur að þegar maður tekur ákvörðunina að hún sé rétt en svo geta menn, eftir því hvernig vindur úr, spurt sig að því hvort hún hafi verið rétt. Ég er alveg tilbúinn í að viðurkenna að, vitandi það sem ég veit núna, þá myndi maður kannski hafa gert þetta aðeins öðruvísi."

Henry spurði hvort það hefðu verið vinslit hjá Jóni Rúnari og Heimi út af þessu.

„Nei, ég á minn vinakreðsu og ég kalla þá alla vini manns. Mér þykir afskaplega vænt um allar þessar persónur. Við Heimir vorum ekki að hittast á kvöldin eða utan fótboltans. Heimir á hverja taug í mér og ég held honum þyki vænt um mig kallinn, ég held það," sagði Jón Rúnar að lokum.

Ólafur Kristjánsson tók við Esbjerg um mitt sumar 2020 og þá komu þeir Logi Ólafsson og Eiður Smári Guðjohnsen í starfið hjá FH. Heimir tók við Val haustið 2019 eftir að hafa orðið Færeyjarmeistari og bikarmeistari sem þjálfari HB. Heimir tók við sem aðalþjálfari FH fyrir sumarið 2008. Hann varð fimm sinnum Íslandsmeistari með FH sem aðalþjálfari, einu sinni sem aðstoðarþjálfari og bikarmeistari árið 2007 og 2010.
Heimir Guðjónsson

Heimir Guðjónsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Rúnar og Óli Kristjáns. Mynd frá 14. okt 2017.

Jón Rúnar og Óli Kristjáns. Mynd frá 14. okt 2017.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.