Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. nóvember 2021 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: 433.is 
Óli Kristjáns með U21 í fjarveru Hemma
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Hreiðarsson er ekki með U21 árs landsliðinu í verkefni liðsins í þessum landsleikjaglugga. Ísland lék gegn Liechtenstein á föstudag og leikur mikilvægan leik gegn Grikklandi ytra á morgun.

Ólafur Helgi Kristjánsson, Óli Kristjáns, var á skýrslu sem aðstoðarþjálfari ásamt þeim Þórhalli Siggeirssyni og Fjalari Þorgeirssyni.

Hermann komst ekki í verkefnið en það staðfesti Klara Bjartmarz í samtali við 433.is í dag.

„Það var mikið að gera hjá Hermanni og hann baðst undan þessari ferð. Við eigum eftir að fara betur yfir hlutina með honum og framhaldið. Óli var mjög spenntur fyrir þessu og stökk til," sagði Klara við 433.is.

Davíð Snorri Jónasson er aðalþjálfari U21 árs landsliðsins og liðið er fjórum stigum á eftir Grikklandi fyrir leikinn á morgun.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner