15.11.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir: Bellingham bestur í Madríd

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
BBC hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir risaslag Englands gegn ríkjandi heims- og Evrópumeisturum Spánverja í Þjóðadeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni
Jude Bellingham var besti leikmaður vallarins og fær hann 9 í einkunn, enda var hann gríðarlega mikilvægur fyrir Englendinga bæði varnarlega og sóknarlega í nýju heimaborginni sinni, er stórþjóðirnar mættust á Metropolitano leikvanginum í Madríd.
Flestir leikmenn enska landsliðsins fá 8 í einkunn fyrir sinn þátt, þar á meðal Elliot Anderson sem fékk beint rautt spjald eftir rúmlega 60 mínútna leik. Anderson var óheppinn að fá rautt spjald fyrir litla snertingu innan vítateigs eftir mistök frá Jarell Quansah sem var lélegastur í enska landsliðinu með 5 í einkunn.
Fabián Ruiz, Mikel Merino og Pau Cubarsí, sem gerðist sekur um að brjóta á Harry Kane innan vítateigs, fá fimmur í liði Spánverja en Lamine Yamal var meðal bestu leikmanna liðsins og fær 8 í einkunn.
Pedro, Fermín López og Nico Williams komu inn af bekknum og fá allir áttur fyrir sitt framlag í misheppnaðri endurkomu Spánverja.
England var þremur mörkum yfir en Spánverjum tókst að minnka muninn niður í eitt mark eftir að Anderson var rekinn af velli. Lokatölur 2-3.
Spánn: Simon (7), Pubill (6), Cubarsi (5), Laporte (7), Cucurella (6), Zubimendi (6), Ruiz (5), Merino (5), Yamal (8), Baena (7), Oyarzabal (7)
Varamenn: Porro (7), Huijsen (6), Pedri (8), F.Lopez (8), Williams (8)
England: Trafford (8), White (8), Konsa (8), Quansah (5), Hall (8), Anderson (8), Rice (8), Bellingham (9), Rogers (8), Gordon (6), Kane (7)
Varamaður: Lewis-Skelly (6)