15.12.15 - 09:29
Magnús Már Einarsson
Víkingur Ó. kaupir Egil Jóns frá KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Víkingur Ólafsvík hefur keypt miðjumanninn Egil Jónsson frá KR en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Egill hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking sem gildir út keppnistímabilið 2017.
Í sumar var Egill á láni hjá Ólafsvíkingum frá KR og hann hjálpaði Víkingi þá að vinna 1. deildina.

Hinn 24 ára gamli Egill skoraði tvö mörk í 26 leikjum með Víkingi á þessu ári.
Hann mun nú taka slaginn áfram með liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Egill er annar miðjumaðurinn sem skrifar undir hjá Víkingi á stuttum tíma en um helgina framlengdi Björn Pálsson samning sinn við félagið.