sun 15. desember 2019 08:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Hazard: Klára það sem ég þarf að gera svo kem ég aftur
Eden Hazard.
Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard fór til Real Madrid í sumar frá Chelsea og hefur ekki náð að standast væntingar hjá spænska stórliðinu að fullu.

Hazard ræddi við Frank Khalid stuðningmann Chelsea á dögunum, þar lét hann ummæli falla sem hafa án efa glatt marga stuðningsmenn Chelsea.

„Þegar ég er búinn að klára það sem ég þarf að gera hér þá kem ég aftur (til Chelsea)," sagði Hazard.

Hazard er ánægður með Chelsea liðið undir stjórn Frank Lampard og fylgist talsvert með liðinu.

„Þegar ég get þá horfi ég. Þeir eru í góðum málum með unga leikmenn og nú geta þeir aftur keypt leikmenn."

Eden Hazard og félagar hans í Real Madrid sitja í 2. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, þeir mæta Valencia í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner