15.12.21 - 15:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Amanda til Kristianstad (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amanda Andradóttir er gengin í raðir Kristianstad í Svíþjóð. Hún lék með Vålerenga á síðasta tímabili en fékk samningi sínum rift í vikunni og er nú búin að skrifa undir í Kristianstad. Hún skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Þar hittir hún fyrir Elísabetu Gunnarsdóttur sem hefur verið þjálfari liðsins í rúman áratug. Amanda verður átján ára um helgina og er hún dóttir Andra Sigþórssonar.

Amanda skoraði fjögur mörk á tímabilinu með Vålerenga, meðal annars mark ársins í norsku deildinni.
„Ég trúi því að þetta sé rétt skref fyrir mig að taka núna. Sænska deildin er góð og Kristianstad hefur gert flotta hluti. Ég er með háleit markmið og Kristianstad er líka með það. Ég hlakka til að hafa Elísabetu sem þjálfara, ég held að ég get lært mikið af henni og verið hluti af hóp með góðum leikmönnum. Ég hlakka til að vera hluti af KDFF," sagði Amanda við undirskrift. Kristianstad verður í Meistaradeildinni á komandi tímabili.
Hún er uppalin hjá Val og Víkingi en fór fimmtán ára gömul til Danmerkur þar sem hún spilaði með Fortuna Hjörring og Nordsjælland.
Hún spilaði sinn fyrsta landsleik í haust og hefur síðan spilað tvo til viðbótar.