Fotbolti.net
16.01.13 - 14:07
Magnús Már Einarsson

Loic Remy til QPR á metfé (Staðfest)

Loic Remy til QPR á metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur gengið frá kaupum á framherjanum Loic Remy en hann kemur til félagsins frá Marseille.

Þessi 26 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við QPR.

QPR hefur greint frá því að Remy er dýrasti leikmaður félagsins frá upphafi en kaupverðið sjálft hefur ekki verið gefið nákvæmlega upp.
,,Ég er ánægður með að fá hann, þetta eru frábær kaup fyrir okkur,\" sagði Harry Redknapp stjóri QPR.

,,Ég hélt að við myndum ekki krækja í hann en Tony Fernadnes (eigandi QPR) vann mikið í þessu. Hann gafst ekki upp og það er frábært að fá leikmanninn hingað.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.