Fotbolti.net
16.01.13 - 11:33
Magnús Már Einarsson

Milan Stefán tekur við Grindavík (Staðfest)

Milan Stefán tekur við Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík

Milan Stefán Jankovic hefur formlega verið ráðinn þjálfari Grindvíkinga en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Pálmi Ingólfsson mun vera honum til aðstoðar.
Eftir að Grindavík féll úr Pepsi-deildinni síðastliðið haust ákvað félagið að segja Guðjóni Þórðarsyni þjálfara liðsins upp störfum.

Félagið gat hins vegar einungis sagt launalið samningsins upp og því hefur ekki verið gengið formlega frá samningi við Milan Stefán fyrr en nú.

Milan Stefán er öllum hnútum kunnugur í Grindavík en hann kom fyrst til félagsins sem leikmaður fyrir tuttugu árum áður en hann tók að sér þjálfun hjá félaginu.

Undanfarin ár hefur Milan Stefán verið aðstoðarþjálfari Grindvíkinga en hann var síðast aðalþjálfari liðsins árið 2009.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.