Fotbolti.net
16.01.13 - 15:53
Elvar Geir Magnússon

Pep Guardiola tekur við FC Bayern (Staðfest)

Pep Guardiola tekur við FC Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska félagið FC Bayern München hefur tilkynnt að Pep Guardiola muni taka við þjálfun liðsins eftir tímabilið.

Guardiola hefur náð samkomulagi um samning til þriggja ára en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann lét af störfum hjá Barcelona í fyrra.
Þessar fréttir koma eins og þruma úr heiðskíru lofti en miklar vangaveltur hafa verið uppi um hvar næsti viðkomustaður þessa eftirsótta þjálfara myndi vera.

Jupp Heynckes, núverandi þjálfari Bæjara, verður samningslaus eftir tímabilið og verður ekki samið áfram við hann.

Guardiola hafði lýst því yfir að hann hefði áhuga á að þjálfa á Englandi og var orðaður við knattspyrnustjórastöðurnar hjá Chelsea, Manchester City og jafnvel Manchester United.

Hann er 41 árs og lék við góðan orðstír sem djúpur miðjumaður hjá Barcelona. Eftir leikmannaferilinn tók hann við B-liði Barcelona og tók síðan við stjórnartaumunum hjá aðalliðinu.

Bayern er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar sem stendur með níu stiga forystu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.