16.01.14 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Kevin Phillips í toppliðið í Championship (Staðfest)

Kevin Phillips er öflugur leikmaður

Mynd: Getty Images

Kevin Phillips er öflugur leikmaður

Mynd: Getty Images
Leicester City í Championship-deildinni hefur fengið hinn afar reynda framherja, Kevin Phillips til félagsins en hann semur við félagið út leiktíðina.
Phillips, sem er 40 ára gamall, mun leika með níunda félaginu á ferlinum en hann hóf feril sinn árið 1994 og hefur síðan þá gert 285 mörk í enskri deildakeppnininni.
Hann var síðast á mála hjá Crystal Palace sem tryggði sér þátttöku í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann var leystur undan samningi hjá félaginu.
Hann hefur leikið yfir 650 leiki á ferlinum en hann hefur leikið með félögum á borð við Watford, Sunderland, Southampton, Aston Villa, WBA, Birmingham og Blackpool.
Hann hefur nú samið við Leicester City út leiktíðina en liðið situr á toppnum í ensku fyrstu deildinni sem stendur og vonast liðið eftir að tryggja sér farseðil í ensku úrvalsdeildinni, þar sem liðið hefur ekki verið frá því árið 2004.
Ljóst er að þetta verður mikill liðsstyrkur fyrir Phillips sem hefur verið öflugur í fyrstu deildinni undanfarin ár.