16.01.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Bessi Víðisson í Þór (Staðfest)

Mynd: Thorsport

Mynd: Thorsport
1.deildarlið Þórs á Akureyri hefur samið við sóknarmanninn Bessa Víðisson sem kemur til félagsins frá Dalvík/Reyni.
Bessi gerir tveggja ára samning við Þór en hann skoraði tvö mörk í níu leikjum í 2.deildinni síðasta sumar þegar Dalvík/Reynir kolféll.
Þessi 26 ára gamli framherji hefur æft með Þórsurum að undanförnu og skoraði tvö mörk þegar liðið burstaði 2.flokk KA í Kjarnafæðismótinu á dögunum.
Við sama tækifæri tilkynntu Þórsarar að Bergvin Jóhannsson og Reynir Már Sveinsson hafi framlengt samninga sína við félagið.
Bergvin er 21 árs gamall og kom við sögu í einum leik í 1.deildinni á síðustu leiktíð en Reynir Már spilaði sjö leiki og skoraði tvö mörk eftir að hafa komið til Þórs frá Vængjum Júpiters.