Fotbolti.net
16.01.16 - 12:49
Ívan Guðjón Baldursson

Charlie Austin til Southampton (Staðfest)

Charlie Austin til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Vefsíða Southampton

Southampton hefur staðfest komu Charlie Austin til félagsins en hann var keyptur frá QPR á 4.5 milljónir punda.

Austin skoraði 18 mörk með QPR á síðasta tímabili er liðið endaði á botni úrvalsdeildarinnar og hefur misst af stórum hluta þessa tímabils vegna meiðsla.
QPR bárust tilboð í Austin síðasta sumar en félagið vildi ekki selja markahrókinn sinn, sem framlengdi þó ekki samning sinn við félagið og ætlaði að yfirgefa það við samningslok næsta sumar.

Þetta ýtir undir orðróma þess efnis að Graziano Pelle og Shane Long séu á förum frá félaginu, en Pelle er eftirsóttur af ítölskum liðum og Liverpool er talið meðal félaga sem vilja Long.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.