Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. janúar 2020 22:24
Ívan Guðjón Baldursson
Franski bikarinn: Bordeaux tapaði fyrir C-deildarliði
Mynd: Getty Images
Pau 3 - 2 Bordeaux
1-0 M. Name ('23)
1-1 J. Maja ('41)
2-1 Y. Jarju ('43)
2-2 N. De Preville ('81)
3-2 L. Gueye ('117)

Það gengur hvorki né rekur hjá franska félaginu Bordeaux sem hefur lengi verið meðal betri liða franska boltans.

Bordeaux er búið að tapa fjórum deildarleikjum í röð og var að detta úr leik í franska bikarnum gegn C-deildarliðinu Pau.

Liðin mættust í kvöld og komst Pau tvívegis yfir en í bæði skiptin jöfnuðu gestirnir frá Bordeaux. Því þurfti að grípa til framlengingar.

Það var ekki mikið um að vera í bragðdaufri framlengingunni þegar Lamine Gueye gerði sigurmark heimamanna á 117. mínútu.

Laurent Koscielny, fyrrum fyrirliði Arsenal, er á mála hjá Bordeaux. Hann var ónotaður varamaður gegn Pau enda verið að hvíla hann fyrir næsta deildarleik.
Athugasemdir
banner
banner