Eggert Gunnþór Jónsson var ekki með FH gegn Keflavík í Fótbolta.net mótinu í dag.
FH tapaði 2-1 gegn Keflavík en auk Eggerts vantaði Matthías Vilhjálmsson og Guðmann Þórisson.
Guðmundur Hilmarsson birti færslu á Twitter þar sem hann segir Eggert Gunnþór hafa verið fjarverandi vegna beinbrots. Eggert braut bátsbein í hendinni fyrr í vikunni.
FH er búið að styrkja leikmannahópinn sinn talsvert undanfarið ár og verður áhugavert að fylgjast með Hafnfirðingum í Pepsi Max-deildinni í sumar.
2:1 tap hjá Fimleikafélaginu gegn Keflavík í Skessunni í https://t.co/5vlFH7Op0H mótinu í dag. Enginn Matti Villa, Guðmann né Eggert Gunnþór, sem var svo óheppinn að brjóta bátsbein í hendinni í vikunni. pic.twitter.com/YEIO49KfiN
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) January 16, 2021
Athugasemdir