Afturelding 4 - 2 Vestri
1-0 Valgeir Árni Svansson
1-1 Vladimir Tufegdzic
2-1 Kristján Atli Marteinsson
3-1 Valgeir Árni Svansson
4-1 Hafliði Sigurðarson
4-2 Aron Daníel Arnalds
1-0 Valgeir Árni Svansson
1-1 Vladimir Tufegdzic
2-1 Kristján Atli Marteinsson
3-1 Valgeir Árni Svansson
4-1 Hafliði Sigurðarson
4-2 Aron Daníel Arnalds
Afturelding og Vestri áttust við í B-deild Fótbolta.net mótsins fyrir skömmu og það voru heimamenn úr Mosfellsbæ sem tóku stigin þrjú.
Valgeir Árni Svansson kom Aftureldingu yfir en Túfa jafnaði leikinn fyrir Vestra sem er að fara inn í tímabilið með nýjan þjálfara, Heiðar Birni Torleifsson.
Aftureldingu brást hins vegar vel við jöfnunarmarkinu og komst í 4-1. Kristján Atli Marteinsson, Hafliði Sigurðarson og Valgeir Árni með mörkin.
Aron Daníel Arnalds náði að minnka muninn fyrir Vestra en lengra komust þeir ekki og lokatölur 4-2 fyrir Aftureldingu sem vann B-deildina í fyrra.
Haukar og Þróttur Vogum eru einnig með Aftureldingu og Vestra í þessum riðli en þau lið mætast klukkan 15:00 í dag.
Athugasemdir