Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 16. janúar 2021 09:00
Victor Pálsson
Sky: Özil vill fara til Tyrklands
Mynd: Getty Images
Mesut Özil, leikmaður Arsenal, vill fara til Fenerbahce í janúarglugganum samkvæmt heimildum Sky Sports.

Framtíð Özil hefur verið í umræðunni síðustu vikur en hann fær ekkert að spila á Emirates undir stjórn Mikel Arteta.

Fenerbahce er það lið sem hefur sýnt Özil hvað mestan áhuga en launakröfur hans eru taldar ansi háar.

Samkvæmt Sky vill Arsenal losna við Özil sem fyrst og er leikmaðurinn nú tilbúinn að róa á önnur mið.

Líklegt er að Özil kveðji á næstu vikum en glugginn er opinn alveg þar til 31. janúar næstkomandi.

Özil hefur leikið með Arsenal í sjö ár en hann kom frá Real Madrid árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner