Fotbolti.net
16.02.16 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Arnar Freyr í HK (Staðfest)

Arnar handsamar boltann í leik með Leikni.

Arnar handsamar boltann í leik með Leikni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

HK hefur fengð markvörðinn Arnar Frey Ólafsson í sínar raðir frá Leikni R.

Arnar Freyr á að fylla skarðið sem Beitir Ólafsson skilur eftir sig. Beitir hefur varið mark HK undanfarin ár en hann fór í Keflavík í vetur.

Arnar Freyr er uppalinn hjá Fjölni en hann hefur verið varamarkvörður Leiknis undanfarin tvö ár. Í fyrra spilaði hann einn leik í Pepsi-deildinni.

Hinn 22 ára gamli Arnar spilaði einnig með Ægi í 2. deildinni árið 2015.
HK mætir Víkingi R. í Lengjubikarnum í kvöld og Arnar gæti verið í eldlínunni þar.

Leiknir hefur fengið markvörðinn Martein Örn Halldórsson til að fylla skarð Arnars.

Marteinn var á mála hjá ÍA í fyrra en þar áður varði hann mark Reynis frá Sandgerði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.