16.02.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Butt tekur við unglingastarfi Rauðu djöflanna (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nicky Butt hefur verið ráðinn til að stjórna knattspyrnuakademíu Rauðu djöflanna og mun hann stýra U19 ára liði félagsins.
Butt er 41 árs gamall og var leikmaður Manchester United í 13 ár áður en hann fór til Newcastle United. Þar að auki á Butt, sem lék sem varnartengiliður, 39 landsleiki að baki fyrir England.

„Það eru forréttindi að fá að taka við þessu starfi og þetta er mikill heiður, sérstaklega fyrir mann eins og mig sem kom í gegnum þetta sama unglingastarf,\" sagði Butt.
„Þetta er stór áskorun og markmið okkar er að halda áfram að senda þroskaða og vel þjálfaða leikmenn í aðalliðið.
„Við búum til leikmenn sem skilja ábyrgðina sem fylgir því að spila fyrir stærsta knattspyrnufélag heims.\"