Fotbolti.net
16.02.16 - 11:23
Magnús Már Einarsson

Hjörtur Hermannsson til IFK Gautaborg (Staðfest)

Hjörtur Hermannsson til IFK Gautaborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

IFK Gautaborg hefur fengið varnarmanninn Hjört Hermannsson á láni frá PSV Eindhoven.

Hjörtur verður á láni hjá IFK Gautaborg fram á sumar og mun því spila fyrri hluta tímabils í Svíþjóð með liðinu.

<i>„Samningurinn er fram á sumar. Síðan sjáum við til hvort að hann verði framlengdur,\"</I> sagði Mats Gren, yfirmaður íþróttamála hjá Gautaborg.

Hinn 21 árs gamli Hjörtur var á reynslu hjá Gautaborg þegar liðið var í æfingabúðum í Dubai á dögunum.
Hjörtur hefur leikið í hollensku B-deildinni með varaliði PSV en hann mun nú leika með Gautaborg næstu mánuðina.

Hjörtur lék með Fylki í yngri flokkunum en hann er lykilmaður í U21 árs landsliði Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.