16.02.16 - 21:10
Óðinn Svan Óðinsson
Selfoss semur við þrjá erlenda leikmenn (Staðfest)

Selfoss að styrkja sig

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Selfoss að styrkja sig

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfoss hefur samið við þrjá nýja leikmenn um að leika með Selfyssingum í 1. deild karla á komandi leiktíð. Þeir skrifuðu allir undir samninga í gærkvöldi en þetta kemur fram á vefnum Sunnlenska.is.
Þetta eru Giordiano Pantano, 23 ára ítalskur vinstri bakvörður, Iván “Pachu” Martínez Gutiérrez, 27 ára miðjumaður og James \"J.C.\" Mack III, 27 ára bandarískur sóknarmaður.
Þetta eru Giordiano Pantano, 23 ára ítalskur vinstri bakvörður, Iván “Pachu” Martínez Gutiérrez, 27 ára miðjumaður og James \"J.C.\" Mack III, 27 ára bandarískur sóknarmaður.
„Þeir hafa allir verið á reynslu hjá okkur undanfarnar tvær vikur og mér líst mjög vel á þá. Þetta eru frábærir karakterar sem munu hjálpa okkur við að gera ungu heimastrákana okkar betri,” sagði Gunnar Borþórsson þjálfari Selfoss í samtali við sunnlenska.is
Pantano lék síðast með AC Lumezzane í 3. deildinni á Ítalíu, Pachu kemur frá Gjøvik-Lyn í 3. deildinni í Noregi og J.C. Mack frá Ekenäs í 3. deildinni í Finnlandi.
Pantano lék síðast með AC Lumezzane í 3. deildinni á Ítalíu, Pachu kemur frá Gjøvik-Lyn í 3. deildinni í Noregi og J.C. Mack frá Ekenäs í 3. deildinni í Finnlandi.
