16.02.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Ingólfs til Hönefoss (Staðfest)

Ásgeir Þór Ingólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Þór Ingólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Þór Ingólfsson hefur skrifað undir tveggja ára samning hjá Hönefoss í Noregi. Hönefoss leikur í norsku C-deildinni en einungis þrjú ár eru síðan liðið lék í norsku úrvalsdeildinni.
„Þegar ég heyrði af þessum möguleika að fara til Noregs varð ég strax mjög spenntur en það var minn fyrrum samherji Albert Högni (Arason) sem bjallaði á mig og bar þetta upp fyrir mér og svo ég á honum allt að þakka,\" sagði Ásgeir við Fótbolta.net í dag.
„Ég fékk að halda mér við heima með Gróttu hjá Þórhalli Dan vini mínum svo ég vill koma fram þökkum til hans og þeirra. Hönefoss er virkilega stór klúbbur hérna í Noregi og bærinn sem slíkur mikill fótboltabær. Aðstæðurnar eru ótrúlega góðar og völlurinn æðislegur, það er æft um þrjú leytið annanhvorn dag og tvisvar á dag hina dagana svo ég er vongóður á að bæta mig vel.\"
„Riðillinn sem við leikum í núna á víst að vera mjög sterkur en það eiga að vera um 7 af 14 liðum sem eru kandítar að fara upp þannig þetta verður bara gaman að takast á við eitthvað nýtt. Ég óska Grindvíkingum alls hins besta fyrir sumarið og sendi góða strauma til Óla Stefáns vinar mins,\" sagði Ásgeir.
Ásgeir yfirgaf herbúðir Grindavíkur eftir að hafa hjálpað liðinu upp úr Inkasso-deildinni í fyrra. Hinn 26 ára gamli Ásgeir er fjölhæfur leikmaður en hann hefur spilað á kanti, miðju og í bakverði á ferli sínum.
Ásgeir spilaði 13 leiki þegar Grindavík fór upp úr Inkasso-deildinni síðastliðið sumar. Hann hefur leikið með Grindavík undanfarin tvö ár og var meðal annars fyrirliði liðsins um tíma. Ásgeir lék áður með uppeldisfélagi sínum Haukum auk þess sem hann spilaði í eitt ár með Val.
Marko Valdimar Stefánsson, leikmaður Grindvíkinga, er einnig með samningstilboð frá Hönefoss og góðar líkur eru á að hann semji einnig við félagið. Marko er uppalinn hjá Grindavík en hann spilaði tólf leiki í Inkasso-deildinni þegar Grindavík fór upp síðastliðið sumar.