16.02.17 - 12:44
Magnús Már Einarsson
Hafþór Þrastar í Selfoss (Staðfest)

Hafþór í leik með Selfossi árið 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafþór í leik með Selfossi árið 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss hefur fengið varnarmanninn Hafþór Þrastarson til liðs við sig fyrir átökin í Inkasso-deildinni í sumar.
Hinn 26 ára gamli Hafþór þekkir til á Selfossi en hann var í láni hjá félaginu frá FH síðari hluta tímabils árið 2012. Þá spilaði hann sex leiki í Pepsi-deildinni með Selfyssingum.

Hafþór spilaði með Fram á síðasta tímabili en hann fór frá félaginu í haust. Hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð, Haukum og KA á ferli sínum.
Undanfarnar vikur hefur Hafþór æft með Selfyssingum og spilað með liðinu í Fótbolta.net mótinu.
„Hafþór er gríðarlega hraður og agressívur leikmaður en einnig sterkur leiðtogi sem kemur til með að styrkja hópinn innan sem utan vallar,\" segir á heimasíðu Selfyssinga.
Hafþór verður kominn með leikheimild með Selfyssingum fyrir leikinn gegn KR í Lengjubikarnum á sunnudag.