16.02.17 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Tómas Ingi áfram aðstoðarþjálfari U21 (Staðfest)

Tómas Ingi Tómasson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Ingi Tómasson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Ingi Tómasson er búinn að framlengja samning sinn sem aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs karla en þetta kemur fram á vef KSÍ.
Tómas hefur verið aðstoðarþjálfari með Eyjólfi Sverrissyni frá því árið 2009. Sögusagnir voru um að hann myndi hætta starfi sínu sem aðstoðarmaður en þær reyndust ekki á rökum reistar.
Eyjólfur og Tómas komu liðinu í úrslitakeppni EM árið 2011 og voru nálægt því að koma liðinu aftur á EM í fyrra. Tap í lokaleik gegn Úkraínu í undankeppninni kom í veg fyrir það.
U21 árs liðið er með Albaníu, Spáni, Norður-Írlandi, Slóvakíu og Eistlandi í riðli í undankeppni EM 2019 en fyrsti leikur þar er gegn Albaníu þann 4. september.
Áður en að því kemur eru tveir vináttuleikir við Georgíu í næsta mánuði.
Nýir árgangar taka nú við í keppni U21 árs liða en elstu gjaldgengu leikmennirnir eru fæddir árið 1996.