16.02.22 - 14:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valgeir Árni eltir Arnór til Hönefoss (Staðfest)

Valgeir í leik síðasta sumar.

Mynd: Raggi Óla

Valgeir í leik síðasta sumar.

Mynd: Raggi Óla

Miðjumaðurinn Valgeir Árni Svansson (24 ára) er genginn í raðir Hönefoss í Noregi. Norska félagið náði samkomulagi við Aftureldingu um að fá leikmanninn. Hönefoss spilar í D-deild, fjórðu efstu deild.
Valgeir Árni er uppalinn hjá Aftureldingu og hefur verið í vaxandi hlutverki í meistaraflokki undanfarin ár en í fyrra spilaði hann 18 leiki í byrjunarliði í Lengjudeildinni.
Samtals hefur hann skorað ellefu mörk í 71 deildar og bikarleik með Aftureldingu á ferlinum. Valgeir getur bæði spilað sem kantmaður og bakvörður.
Á dögunum gekk Arnór Gauti Ragnarsson einnig til liðs við Hönefoss en hann er eins og Valgeir uppalinn hjá Aftureldingu. Í fyrra skoraði Arnór Gauti tíu mörk með Aftureldingu í Lengjudeildinni og var markahæsti leikmaður liðsins.