Fotbolti.net
16.02.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Mourinho: Særður og hættulegur konungur

Mourinho: Særður og hættulegur konungur
Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, stjóri Benfica, segir að lið Real Madrid verði sært og hættulegt í komandi einvígi. Benfica vann viðureign liðanna í Meistaradeildinni í síðasta mánuði og nú mætast þau aftur og keppa um sæti í 16-liða úrslitum.

Benfica komst í umspilið með mögnuðum 4-2 sigri gegn Real Madrid í lokaumferð deildarkeppninnar þar sem markvörðurinn Anatoliy Trubin skoraði með skalla á 98. mínútu. Það mark kom Benfica í umspilið.

Tap Real Madrid í Lissabon gerði það að verkum að liðið komst ekki sjálfkrafa í umspilið heldur þurfti að fara í umspilið þar sem það dróst gegn Benfica.
Ótrúlegar senur þegar markvörðurinn skoraði flautumark sem kom liðinu áfram
TENGT EFNI

Ótrúlegar senur þegar markvörðurinn skoraði flautumark sem kom liðinu áfram

„Þeir eru særðir. Særður konungur er hættulegur," segir Mourinho, sem er fyrrum stjóri Real Madrid.

„Við verðum með hugarfarið rétt, metnað og sjálfstraust. Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar. Þetta verður mjög krefjandi einvígi en ég er vanur. Trubin verður ekki í sókninni."

Fyrri leikur Benfica og Real Madrid verður í Lissabon klukkan 20 annað kvöld.

Fyrri leikirnir í umspili Meistaradeildarinnar:

þriðjudagur 17. febrúar
17:45 Galatasaray - Juventus
20:00 Benfica - Real Madrid
20:00 Dortmund - Atalanta
20:00 Mónakó - PSG

miðvikudagur 18. febrúar
17:45 Qarabag - Newcastle
20:00 Bodö/Glimt - Inter
20:00 Club Brugge - Atletico Madrid
20:00 Olympiakos - Leverkusen
Trubin var hetjan í lokaumferðinni.

Trubin var hetjan í lokaumferðinni.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.