Fotbolti.net
16.03.13 - 20:30
Fótbolti.net

Björg Magnea í HK/Víking (Staðfest)

Björg Magnea í leik með Haukum

Björg Magnea í leik með Haukum

Canon

Mynd: ÞÓ - Haukar.is

Kvennaboltinn
Pepsi-deildar nýliðar HK/Víkings halda áfram að styrkja leikmannahóp sinn en nú hefur Björg Magnea Ólafs gengið til liðs við liðið. Þetta kemur fram á heimasíðu HK.
Björg Magnea er 24 ára gömul og hefur mikla reynslu úr efstu og fyrstu deild en hún hefur leikið 101 meistaraflokksleik frá árinu 2005 og skorað í þeim 27 mörk. Auk þess hefur hún spilað fjóra leiki með U19 ára landsliðinu.

Hún er uppalin hjá Haukum en lék með Selfyssingum í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Undanfarin ár hefur hún verið í námi í Bandaríkjunum og spilað þar knattspyrnu. Hún verður erlendis fram á vor en kemur svo til liðs við nýja liðið sitt.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.