Fotbolti.net
16.03.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Ingó í Ægi (Staðfest)

Ingó í Ægi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingólfur Þórarinsson hefur gengið til liðs við Ægi Þorlákshöfn sem leikur í 2. deildinni.

Ingólfur spilaði í fyrra með KFS í 3. deildinni og árið 2014 var hann spilandi þjálfari hjá Hamri í 3. deildinni.

Hinn 29 ára gamli Ingó er uppalinn á Selfossi og lengst af ferilsins hefur hann leikið á heimaslóðum.
Ingólfur spilaði með Ægi í Fótbolta.net mótinu á dögunum og hann hefur nú fengið félagaskipti.

Einar Ottó Antonsson tók við þjálfun Ægis síðastliðið haust en hann spilaði lengi með Ingólfi á miðjunni hjá Selfyssingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.