Fotbolti.net
16.03.16 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Ström-vélin áfram hjá ÍR (Staðfest)

Ström-vélin áfram hjá ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Gísli Ström, lykilmaður 2. deildarliðs ÍR, skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við ÍR.

Jón Gísli er uppalinn hjá ÍR en hann er fæddur 1993 og byrjaði að leika fyrir meistaraflokk félagsins 2010.
Hluta árs 2013 lék hann með ÍBV og spilaði þrjá leiki með liðinu í Pepsi-deildinni.

„Jón Gísli er óðum að ná sér eftir meiðsli og verður til í slaginn með strákunum í sumar. Til hamingju allir ÍR-ingar,\" segir á heimasvæði ÍR á Facebook.

Jón Gísli er sóknarmaður og hefur skorað 37 mörk í 106 leikjum fyrir ÍR í deild og bikar.

ÍR-ingum hefur mistekist undanfarin ár að koma sér upp úr 2. deildinni en í fyrra hafnaði liðið í þriðja sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.