Fotbolti.net
16.03.22 - 10:24
Elvar Geir Magnússon

Hannes leggur hanskana á hilluna (Staðfest)

Hannes Þór Halldórsson hefur lagt hanskana á hilluna.

Hannes Þór Halldórsson hefur lagt hanskana á hilluna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hannes Þór Halldórsson hefur staðfest að fótboltaferli sínum sé lokið en hann verður 38 ára í næsta mánuði.
„Eftir 17 ár í meistaraflokki og 31 ár í fótbolta er kominn tími á að leggja hanskana á hilluna. Ég hef kynnst ógrynni af góðu fólki á þessum árum, unnið með mörgum frábærum þjálfurum, eignast vini fyrir lífstíð og upplifað ótrúlegar stundir, skrifaði Hannes á Facebook.

„10 tímabil í efstu deild, 77 landsleikir, 2 stórmót, 3 Íslandsmeistaratitlar, 2 bikarmeistaratitlar og 6 ár í atvinnumennsku er eitthvað sem mig óraði ekki fyrir að upplifa í mínum villtustu draumum. Fjölskylda, liðsfélagar, þjálfarar, stuðningsfólk og allir sem hafa hjálpað mér á leiðinni, takk fyrir mig."

Hannes lék 77 landsleiki fyrir Ísland og er án nokkurs vafa besti markvörður í sögu landsliðsins. Hann varði mark Íslands á EM í Frakklandi 2016 og á HM í Rússlandi 2018.

Hannes er uppalinn hjá Leikni í Breiðholti og varð Íslandsmeistari með KR tvívegis og Val einu sinni. Hans síðasta tímabil á ferlinum var í treyju Valsmanna í efstu deild í fyrra.

Hannes leggur hanskana á hilluna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.