16.03.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sóley komin aftur í Stjörnuna (Staðfest)

Sóley Guðmundsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóley Guðmundsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Sóley Guðmundsdóttir er búin að fá félagaskipti aftur í Stjörnuna.
Hún gekk í raðir portúgalska félagsins Sport Futebol Damaiense á láni í febrúar. Félagið er í Lissabon og spilar í næstefstu deild eftir að hafa fallið á síðasta tímabili.
Sóley er núna komin aftur í Stjörnuna eftir dvölina í Portúgal og mun spila í Garðabænum í sumar.
Sóley framlengdi samning sinn við Stjörnuna eftir síðasta tímabil, en hún er uppalin hjá ÍBV. Hún hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2019.
Í fyrra lék hún tíu leiki í efstu deild þegar Stjarnan hafnaði í fjórða sæti deildarinnar. Það er mjög gott fyrir félagið að endurheimta hana fyrir mótið.
Það var hitað upp fyrir Bestu deildina í Heimavellinum fyrir síðustu helgi. Hægt er að hlusta á þann þátt hér að neðan.