Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. mars 2023 19:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rashford kominn með fleiri mörk en Ronaldo í Evrópukeppnum
Marcus Rashford og Cristiano Ronaldo
Marcus Rashford og Cristiano Ronaldo
Mynd: EPA

Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik er Manchester United komið með forystuna gegn Real Betis og svo gott sem búið að gera út um einvígið.


Það var enginn annar enn Marcus Rashford sem skoraði markið eftir um það bil 10 mínútna leik í síðari hálfleik en það gerði hann með mögnuðu skoti fyrir utan vitateiginn.

Þetta er 27. mark hans á tímabilinu en hann hefur skorað 25 mörk í Evrópukeppnum á ferlinum með Manchester United.

Með þessu marki fór hann upp fyrir Cristiano Ronaldo sem skoraði 24 mörk í Evrópukeppnum fyrir United á ferlinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner